27.5.2009 | 22:08
Lýðræðið ræður ferðinni
Gott að sjá að á þingi eru menn sem vilja láta lýðræðið ráða í stað þess að flaustrast blint í þessum málum. Betra fara verlega en að gera vitleysu í fljótfærni. Það þarf bara að tryggja að ef málið kemst á það stig að þjóðin kjósi um aðild að ESB, þá fái aukinn meirihluti að ráða. Málið er einfalldlega þess eðlis. það er mín skoðun.
|
Utanríkismálanefnd í lykilhlutverki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |

gudmundsson
gattin
gbo
gmc
duddi9
Athugasemdir
Aukinn meirihluti og lýðræði!
Á meðan ekki var þingmeirihluti fyrir ESB aðildarviðræðum var sagt að viðræður kæmu ekki til grein vegna þess að um þingmál væri að ræða og Alþingi þyrfit að samþykka viðræður og fyrir því væri ekki meirihluti(m.a. Björn Bjarnason & Geir Haarde sögðu þetta - nenni ekki að finna þetta í þingræðu, en get bætt úr því).
Síðan var þingmeirihluti fyrir þessu og þá vilja andstæðingar viðræðna ekki að þingið taki þetta fyrir.
Nú sýna allar skoðanakannanir að þjóðin vill þetta og þá er krafist aukins meirihluta!
Þjóð og þing vill aðildarviðræður, en við látum minnihlutann kúga þjóðina áfram!
Ég segi ekki meir, ekki meir!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 27.5.2009 kl. 22:33
Guðbjörn eitt skil ég þið talið alltaf um að þjóðin vilji þetta!! ég spyr bara eru það þessi 28% sem er um það bil stuðningurinn sem SF hafði í kosningunum en hugsa nú að þessi 28% hafi lækkað verulega.Ég umgengst mikið af fólki daglega og í 99% tilfella vill fólk ekki sjá ESB þegar ég spyr það.Svo hvaða þjóð og réttlæti eruð þið alltaf að tala um????Auðvitað á að kjósa um hvort eigi að fara í aðildarviðræður það kallast lýðræði en versta er það er bara ekki ykkar skoðun á lýðræði.Í seinni heimstyrjöldinni í Noregi þegar að Þjóðverjar voru að hertaka Noreg voru þeir Norðmenn sem unnu gegn þjóð sinni og hjálpuðu Þjóðverjum kallaðir kvislingar og þú manst kannski hvað var gert við þá??Mér finnst þetta orð eiga vel við Samfylkinguna sem er að vinna gegn þjóð sinni með landráði.....
Marteinn Unnar Heiðarsson, 27.5.2009 kl. 23:29
Sæll Guðbjörn og takk fyrir innleggið.
Ég skal alveg hafa þín orð fyrir því sem haldið hefur verið fram í þingræðum fyrri þinga. Verð að viðurkenna á mig að hugsanlega hefur hluti af umræðunni um ESB farið fram hjá mér undanfarin ár. Visku mína um ESB umræðu hef ég aðallega frá þeim vefmiðlum sem í boði eru. Þeir eru svo sem ekkert alslæmir. En allavega í umræðunni í dag þykir mér skorta á rök frá þeim sem aðhillast inngöngu í ESB. Eins og þú réttilega bendir á hljóta að liggja fyrir einhverjar staðreyndir um það hvað við fáum út úr því að ganga inn, hverju það mun breyta fyrir okkur og hverju við þurfum að sjá af. Eina sem ég sé fyrir mér að gæti komið okkur til einhverra bóta er upptaka evrunnar, en ég leyfi mér að stórefast um að við fengjum samþykki fyrir því fyrr en við erum búin að taka til í efnahagsmálunum hjá okkur. Og við þurfum að gera það hvort sem við stöndum fyrir utan eða förum inn.
En ég vill taka það skýrt fram eins og ég segi í svari mínu við athugasemd við blogg hjá mér fyrir tveimur dögum síðan, var ég fylgandi aðildarviðræðum fyrir svo sem tveimur til þremur árum síðan, en tel forsendurnar brosnar í dag. Hver veit nema þessar forsendur eigi eftir að skapast seinna meir.
En í dag tel ég að þessi meirihluti sem þú talar um sé býsna tæpur, sé hann yfirhöfuð fyrir hendi í dag, mv. þá umræðu á blogginu sem á sér stað og miðað við þau viðbrögð sem ég hef fengið hjá þeim sem ég hef rætt við um þessi mál. Og þetta mál, sérstaklega við núverandi aðsæður er það viðkvæmt, að öruggur meirihluti þarf að vera fyrir því að breytingar verði á núverandi tengslum við Evrópu. En ef þú skildir mig þannig að ég teldi að aukin meirihluti þyrfti fyrir því að fara í aðildarviðræðurnar þá hefur þú misskilið mig. ég tel að einfaldur meirihluti ætti að nægja í þjóðaratkvæðagreiðslu um formlegar viðræður um ESB, en síðan, gangi viðræðurnar upp, þurfi aukin meirihluta. Hér er um mjög ákveðið afsal á sjálfsákvörðunarrétti okkar að ræða, og það er það djúpstæður ágreiningur um þessi mál, að ég tel að afgerandi niðurstaða sé nauðsynleg, svo við sitjum ekki uppi með klofna þjóð. En tvöfölld þjóðaratkvæðagreiðsla þarf að fara fram svo að lýðræðið nái fram að ganga.
En var það ekki það sem forsætisráðherrann sem mér skilst að sé nokkuð hlynnt aðild að ESB, að ekki mætti fórna hagsmunum minnihlutans fyrir meirihlutann?? þetta er svo sem útúrsnúningur, en ég mátti til með að láta hann fylgja með.
En þegar öllu er á botninn hvolft, þá er ég einn af þeim sem finnst að það þurfi að frekar að leggja áherslu á önnur mál í samfélaginu, það tekur enginn til fyrir okkur, við verðum, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, að taka til eftir okkur sjálf. Fyrr held ég að við höfum ekkert erindi í Evrópusambandið.
Ásbjörn Kristinsson
Ásbjörn Kristinsson, 27.5.2009 kl. 23:31
Ég held ég leyfi mér eiginlega að taka undir með þér Marteinn Unnar, að kalla framgang Samfylkingarinnar landráð í þessu máli, en það eru býsna stór orð.
Ásbjörn Kristinsson, 27.5.2009 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.